Við bjóðum upp á fatamarkað þar sem þú getur selt flíkur og fylgihluti með því að leigja bás. Tvenns konar básar eru í boði: barnabásar og fullorðinsbásar. Getum einnig útvegað hillubása ef óskað er eftir.
Með því að endurnýta fatnað ert þú að stuðla að bættu umhverfi.
Þú sérð um verðlagningu og uppsetningu á básnum, við sjáum svo um alla sölu.
Þú getur fylgst með sölunni rafrænt og færð svo söluhagnaðinn greiddan út eftir að leigutíma líkur.